Persónuverndarstefna
Síðast uppfærð 3. nóvember 2026
Tento („Tento“, „við“) er í stofnun. Þar til Tento ehf. hefur verið skráð ber stofnandi Tento ábyrgð á persónuupplýsingum sem unnið er með á þessum vef. Tento ehf. verður ábyrgðaraðili persónuupplýsinga í Boða. Hafðu samband á tento@tento.is um allt sem varðar persónuvernd.
Boði er enn í þróun og ekki kominn í App Store eða Google Play. Kaflarnir um Boða lýsa því hvernig hann virkar og gilda frá þeim degi sem hann kemur út. Kaflinn um þennan vef gildir nú þegar.
Það sem við getum ekki séð
Skilaboð, myndir, myndbönd, raddskilaboð og límmiðar sem þú sendir í Boða eru dulkóðuð enda á milli í símanum þínum (MLS-samskiptareglan). Lyklarnir eru aðeins í tækjum fólksins í samtalinu. Tento hefur þá ekki og getur hvorki lesið skilaboðin þín né afhent þau öðrum. Sama á við um dulkóðað öryggisafrit: það er læst með endurheimtarlykli sem aðeins þú hefur.
Upplýsingar sem við vinnum með í Boða
- Aðgangur: nafn, notandanafn og netfang (ef þú skráir þig með netfangi). Ef þú notar rafræn skilríki fáum við kennitöluna við innskráningu en geymum hana ekki. Við geymum aðeins dulritað fingrafar hennar (HMAC) og nafnið eins og það kemur úr skilríkjunum.
- Tengsl: hverjum þú hefur bætt við, á hvern þú hefur lokað og í hvaða samtölum þú ert.
- Lýsigögn skilaboða: hver sendi í hvaða samtal og hvenær, og stærð dulkóðaðra gagna. Þjónninn þarf þetta til að koma skilaboðum til skila.
- Dulkóðuð gögn: dulkóðuð skilaboð í 7 daga eftir að öll tæki í samtalinu hafa sótt þau (skemur ef þau eiga að hverfa fyrr), dulkóðaðar skrár í allt að 30 daga og dulkóðað öryggisafrit ef þú kveikir á því.
- Tæki: heiti tækis, opinberir lyklar þess, hvenær það var síðast virkt og, ef þú leyfir tilkynningar, auðkenni fyrir tilkynningar. Tilkynningar segja aðeins „Ný skilaboð“ og innihalda hvorki efni né nafn sendanda. Tæki sem hefur ekki verið notað í 180 daga er skráð út.
- Prófílmynd (Boði+): geymd á þjóni Boða og ekki dulkóðuð enda á milli. Hún sést aðeins hjá fólki sem þú hefur bætt við og fólki sem þú hefur skrifað til.
- Áskrift og kaup: hvort þú ert með Boða+ og hvaða límmiðapakka þú átt. Greiðslur fara um App Store eða Google Play og við fáum aldrei greiðslukortaupplýsingar.
- Tilkynningar um misnotkun: ef einhver tilkynnir þig fylgja með síðustu skilaboð frá þér í því samtali (allt að 5), sem tæki tilkynnandans sendir. Þau eru aðeins notuð til að skoða málið.
- Tæknileg gögn: IP-talan þín er notuð til að verjast misnotkun (takmörk á fjölda beiðna) og er aðeins geymd í minni þjónsins í mesta lagi klukkustund. Hún er ekki skráð í annála. Annálar þjónsins geyma tíma, slóð og niðurstöðu beiðna í takmarkaðan tíma, sem verður tilgreindur hér áður en Boði kemur út.
Til hvers
Til að veita þjónustuna (skrá þig inn, koma skilaboðum til skila, endurheimta afrit), til að verjast misnotkun og svikum, til að stýra áskrift og kaupum, og til að uppfylla lagaskyldur. Grundvöllur vinnslunnar er samningur við þig (notkunarskilmálar), lögmætir hagsmunir af öruggri þjónustu og, þar sem við á, samþykki þitt (t.d. fyrir tilkynningum).
Við seljum aldrei upplýsingar um þig og notum þær ekki í auglýsingar. Það eru engar auglýsingar í Boða.
Vinnsluaðilar
Við notum hýsingaraðila fyrir þjóninn innan EES og póstþjónustu fyrir innskráningarkóða, sem verða nafngreind hér áður en Boði kemur út, auk Expo (tilkynningar, sem sendir áfram til Apple og Google), Apple og Google (forritaverslanir og greiðslur), RevenueCat (umsýsla áskrifta) og Kenni (rafræn skilríki). Enginn þeirra fær aðgang að efni skilaboða.
Hve lengi
Aðgangsupplýsingar eru geymdar þar til þú eyðir aðganginum. Þú getur eytt honum hvenær sem er í Ég → Aðgangur og öryggi → Eyða aðgangi. Þá eyðum við strax nafni, notandanafni, netfangi, fingrafari kennitölu, tengiliðum, lokunum, öryggisafriti, prófílmynd og innskráningum. Skilaboð sem aðrir hafa þegar fengið eru áfram í tækjum þeirra. Dulkóðaðar skrár hverfa innan 30 daga. Tilkynningar um misnotkun eru geymdar meðan málið er til skoðunar og þeim er eytt 90 dögum eftir að það hefur verið afgreitt.
Beiðnir lögreglu og annarra yfirvalda
- Við afhendum upplýsingar um notendur aðeins þegar lög skylda okkur til þess, að jafnaði samkvæmt dómsúrskurði. Við staðfestum hverja beiðni beint hjá viðkomandi embætti áður en við svörum henni.
- Við getum aldrei afhent efni skilaboða, mynda, myndbanda, raddskilaboða eða öryggisafrita, því við höfum ekki lyklana að þeim.
- Það sem við gætum þurft að afhenda er það sem talið er upp hér að ofan, eins og það er hjá okkur þegar beiðnin berst. Við geymum ekki upplýsingar lengur vegna þess að einhver gæti beðið um þær.
- Við afhendum aðeins það sem beiðnin nær til, og látum þig vita af beiðni sem varðar þig nema lög eða dómstóll banni það eða það myndi stefna lífi eða öryggi einhvers í hættu.
- Ef líf eða heilsa einhvers er í bráðri hættu getum við afhent lágmarksupplýsingar án dómsúrskurðar, að vel athuguðu máli, og skráum hvers vegna.
- Beiðnir erlendra yfirvalda afgreiðum við aðeins í gegnum íslensk yfirvöld eftir þeim leiðum sem lög gera ráð fyrir.
- Við bætum aldrei leynilega tæki við aðgang þinn né breytum lyklum til að hlera samtöl. Slíkt myndi sjást hjá þér og þeim sem þú talar við.
- Við birtum árlega hve margar beiðnir bárust og hve mörgum var svarað.
Þessi vefur, tento.is
Vefurinn notar engar vafrakökur, enga vefgreiningu og enga rakningu, og sækir hvorki letur né annað efni frá þriðju aðilum. Hann er hýstur hjá Cloudflare, Inc., sem vinnur tæknileg gögn eins og IP-tölu til að afhenda síðuna og verjast árásum. Cloudflare er vottað samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework).
Ef þú sendir okkur tölvupóst, til dæmis til að fá að vita þegar Boði kemur, notum við netfangið þitt og það sem þú skrifar aðeins til að svara þér og láta þig vita, og geymum það ekki lengur en þörf er á. Þú getur hvenær sem er beðið okkur um að eyða því.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu, andmæla vinnslu og fá upplýsingarnar afhentar til flutnings. Hafðu samband á tento@tento.is. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Börn
Boði er ætlaður fólki 13 ára og eldri.
Breytingar
Ef við breytum stefnunni látum við vita í Boða áður en breytingin tekur gildi og birtum nýja útgáfu hér.