Notkunarskilmálar Boða
Síðast uppfærðir 3. nóvember 2026
Boði er samskiptaforrit frá Tento („Tento“). Tento ehf. er í stofnun og verður samningsaðili þinn þegar Boði kemur út. Með því að nota Boða samþykkir þú þessa skilmála og persónuverndarstefnu Tento.
Boði er enn í þróun og ekki kominn í App Store eða Google Play. Skilmálarnir gilda frá þeim degi sem hann kemur út.
Aðgangur
- Þú þarft að vera 13 ára eða eldri.
- Þú skráir þig með netfangi eða rafrænum skilríkjum og berð ábyrgð á tækjunum sem þú notar.
- Ef þú tengir rafræn skilríki kemur nafnið þitt úr þeim, og staðfestingarmerkið segir öðrum að nafnið sé þitt.
Dulkóðun og öryggisafrit
Skilaboð eru dulkóðuð enda á milli og Tento hefur ekki lyklana. Það þýðir líka að Tento getur ekki endurheimt skilaboð ef þú týnir tæki eða endurheimtarlykli. Skilaboð sem hverfa eru fjarlægð af þjóninum og úr tækjum á tilsettum tíma, en ekki er hægt að koma í veg fyrir skjáskot.
Það sem er bannað
Að nota Boða til að áreita, hóta eða blekkja fólk, senda ruslpóst, dreifa ólöglegu efni (þar á meðal efni sem sýnir kynferðislega misnotkun barna), villa á sér heimildir, reyna að komast inn í aðganga annarra eða trufla þjónustuna.
Þú getur lokað á fólk og tilkynnt það. Tento skoðar tilkynningar og getur lokað aðgöngum sem brjóta gegn skilmálunum. Tento sér aðeins það sem fylgir tilkynningu, ekki önnur skilaboð.
Boði+ og límmiðar
- Spjall í Boða er ókeypis. Boði+ er áskrift sem bætir við aukaeiginleikum. Hún er greidd í gegnum App Store eða Google Play og endurnýjast sjálfkrafa þar til henni er sagt upp í stillingum verslunarinnar, minnst sólarhring fyrir lok tímabils. Þegar áskrift lýkur falla aukaeiginleikarnir niður eins og lýst er í forritinu.
- Límmiðapakkar sem eru keyptir stakir eru þínir til afnota í Boða svo lengi sem aðgangurinn er til. Sumir pakkar fylgja Boða+ og aðrir aðeins fyrstu notendum.
- Endurgreiðslur fara eftir reglum Apple og Google. Þetta takmarkar ekki rétt sem þú átt samkvæmt lögum um neytendavernd.
Efni
Þú átt það sem þú sendir. Tento á Boða, merki hans, hljóð og límmiða. Þú mátt nota límmiðana í Boða en ekki annars staðar án leyfis.
Ábyrgð
Tento leggur sig fram um að Boði virki og sé öruggur en ábyrgist ekki að hann sé alltaf aðgengilegur eða villulaus. Tento ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, nema lög kveði á um annað. Ekkert í skilmálunum takmarkar rétt sem þú átt sem neytandi samkvæmt lögum.
Breytingar og lok
Tento getur breytt skilmálunum og lætur vita í forritinu áður en breytingar taka gildi. Þú getur hætt hvenær sem er og eytt aðganginum í Ég → Aðgangur og öryggi → Eyða aðgangi.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreiningur fer fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.
Spurningar: tento@tento.is.